„Það varð slys á Hellisheiði upp úr klukkan hálf tíu í kvöld,“ staðfestir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, en hann segir einn hafa verið fluttan alvarlega slasaðan á slysadeild til athugunar og aðhlynningar.
Þá sé mikil hálka á vettvangi og að í kvöld hafi fjöldi umferðaróhappa orðið á vegkaflanum. Mest hafi verið um bíla sem fóru út af veginum og þá segist hann telja það allt hafa verið fólksbíla.
Verið sé að vinna á vettvangi og ekki sé unnt að segja til um hvenær opnað verði fyrir umferð á ný. Hægt er að fylgjast með því hvenær vegurinn verður opnaður á ný á vef Vegagerðarinnar en þar eru einnig settar inn uppfærslur er varða færð.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.