Þrjú sveitarfélög hafa brotið ákvæði sveitarstjórnarlaga og fengið áminningu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Samtals sjö sveitarfélög uppfylla ekki ákvæði í frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum.
Nýr formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að á þessu ári hafi neikvæð áhrif verðbólgu og hárra vaxta mikil áhrif á rekstur sveitarfélaga. Síðasta ár var betra. Þá uppfylltu öll sveitarfélög landsins, 61 talsins, skuldaregluna, það er að segja lögbundið skuldaviðmið. Þá var ekkert sveitarfélag með skuldir sem voru meiri en 150% af tekjum.
Önnur mikilvæg regla er jafnvægisreglan. Samkvæmt henni verður samanlögð rekstrarniðurstaða síðustu þrjú ár að vera jákvæð. Þá er átt við bæði A-hluta, kjarnareksturinn sem fjármagnaður er af skatttekjum, og B-hluta, fyrirtæki í eigu sveitarfélaga og stofnanir, sem reknar eru sjálfstætt.
Þessa jafnvægisreglu í sveitarstjórnarlögunum - brutu Seltjarnarnes, Strandabyggð og Vopnafjarðarhreppur. Seltjarnarnesbær er tæpar 343 milljónir króna í mínus. Tap Vopnafjarðarhrepps er rúmar 69 milljónir síðustu þrjú ár samkvæmt ársreikningum 2024 og fimm og fjárhagsáætlun í ár. Hjá Strandabyggð nemur tapið rúmum 53 milljónum króna. Þessi þrjú sveitarfélög gera öll ráð fyrir að ekki verði tap á þessu ári.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga áminnti þessi sveitarfélög í september. Þegar stefnir í óefni hjá sveitarfélögum, sem alls ekki á við í þessu tilfelli, getur nefndin skipað fjárhaldsstjórn og svipt sveitarstjórn fjárráðum. Það gerðist 2010 með Álftaneshrepp. Reykjanesbær stóð tæpt 2016 en þá tókst að semja við kröfuhafa.
Í frumvarpi innanríkisráðherra til nýrra sveitarstjórnarlaga sem nú bíður annarrar umræðu á Alþingi verður bætt við reglurnar. Þá verður skylt að A-hluti, grunnstarfsemin, verði ekki rekin með tapi á hverju þriggja ára tímabili.
Væri frumvarpið orðið að lögum teldust fjögur sveitarfélög til viðbótar þessum þremur hafa brotið jafnvægisregluna. - Hafnarfjarðarbær, Skagaströnd, Stykkishólmur og Skaftárhreppur. Tap var hjá þeim öllum síðustu þrjú ár, mest í Hafnarfirði. Staðan er þó verst hjá Seltjarnarnesbæ þar sem A-hluta tapið er einn milljarður og 57 milljónir króna.