Þetta kemur fram þegar borin er saman tímaáætlun á framkvæmdavef borgarinnar og ný kynning á stöðu framkvæmda við Hlemm fyrir umhverfis- og skipulagsráð í gær.
Í stöðuuppfærslu frá maí sagði að vinna við veitulagnir í Þverholti væri í gangi. Í framhaldinu yrði gengið frá yfirborði, aðkoma að inngöngum húsa bætt og rampar gerðir þar sem því yrði komið við.
„Áætlað er að þessar framkvæmdir standi fram á mitt sumar,“ sagði í uppfærslunni.
Í nýju kynningunni er verkinu hins vegar lýst sem framkvæmd í fullum gangi og sagt að stefnt sé að verklokum fyrir áramótin 2026–2027.
Ekki er þar skýrt hvers vegna tímaáætlunin hefur breyst eða hvort breytingin hafi áhrif á kostnað við verkið.
Svæðið við leikhöllina klárist fyrir áramót
Við Norðurpól og fyrirhugaða leikhöll er frágangur torgsvæðisins enn eftir. Samkvæmt kynningunni á að ljúka framkvæmdum við svæðið umhverfis leikhöllina fyrir áramót.
Í maí taldi borgin líklegt að svæðið næst Hverfisgötu, þar sem Norðurpóll og leikhöllin verða, yrði tilbúið á haustmánuðum.
Leikhöllin verður í stálgrindarhúsi austan við Norðurpól og er ætluð öllum aldurshópum, með aðstöðu fyrir yngstu börnin á jarðhæð.
Grunnurinn er kominn á sinn stað og leiktækin eru sögð á leið til landsins.
Nýr áfangi stendur út næsta ár
Fleiri framkvæmdir eru fram undan við Hlemm. Reykjavíkurborg tilkynnti í gær að vinna við norðursvæði Hlemms og uppbyggingu Borgarlínu hæfist á næstu dögum. Áætlað er að þeim áfanga ljúki í lok árs 2027.
Samið hefur verið við Gröfu og Grjót um verkið. Endurgera á gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu og Snorrabraut frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Jafnframt verður lögð leið fyrir Borgarlínu um torgið, komið upp stöð og lagnir endurnýjaðar.
Akreinar um torgið verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum
Göngu- og hjólaleiðir afhentar í mars
Í kynningunni er jafnframt farið yfir framkvæmd Betri samgangna á Laugavegi. Þar er unnið að fyrsta fasa af þremur.
Áætlað er að göngu- og hjólaleiðir verði afhentar í mars á næsta ári og að framkvæmdinni ljúki í lok maí 2027.