Donald Trump forseti Bandaríkjanna ræðst harkalega að einum besta körfuboltamanni allra tíma, LeBron James, í nýrri færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Segir forsetinn James hafa sýnt af sér skammarlega hegðun, vanvirðingu og gert lítið úr öllum þeim bandarísku hermönnum sem hafa fallið í stríðsátökum. Segir hann James hafa gert þetta með því að standa ekki kyrr á meðan þjóðsöngur Bandaríkjanna var leikinn fyrir upphafsleik nýs tímabils, hjá liði hans, í NBA-deildinni.
Hjólar í eina helstu íþróttastjörnu heims - „Algjörlega til skammar“