Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að farið sé yfir sjónarmið Eflingar um útvistaða ræstingaþjónustu í bænum. Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ritaði harðorða skoðanagrein á Vísi í gær.
Þar gagnrýndi hún Mosfellsbæ fyrir það hvernig staðið hefði verið að eftirliti með starfi ræstingafólks í bænum og því hvort ákvæði kjarasamninga væru uppfyllt.
„Við viljum auðvitað eiga góð og málefnaleg samskipti við Eflingu og virðum mikilvægt hlutverk þeirra,“ segir Hilmar.
Formaður Eflingar lýsir áhugaleysi af hálfu bæjarins
Meðal þess sem Sólveig Anna vakti athygli á var það að fulltrúar Eflingar hefðu farið inn á þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í vinnustaðaeftirlit í haust. Hún segir að þar hafi sex starfsmenn iClean verið fyrir en að enginn þeirra hafi verið með vinnustaðaskírteini.
Sólveig Anna skrifar að Efling hafi mætt áhugaleysi, hroka og fálæti í samskiptum sínum við Mosfellsbæ.
Hilmar vill ekki svara aðfinnslum Sólveigar Önnu lið fyrir lið en segir sveitarfélagið vinna málið áfram með Eflingu. Farið sé yfir sjónarmið sem stéttarfélagið hefur sett fram um gagnaöflun.
„Sveitarfélagið tekur allar ábendingar alvarlega. Við gerum auðvitað skýrar kröfur til okkar verktaka um að þeir virði allar leikreglur. Okkar meginmarkmið er alveg skýrt – að réttindi starfsfólks séu virt og þeir sem sinni verkefnum fyrir Mosfellsbæ standi við sínar skyldur. Við eigum öll sameiginlegra hagsmuna að gæta þar,“ segir Hilmar.
Í tilkynningu á vef bæjarins segir að Mosfellsbær hafi gert kröfu til iClean að bregðast við ábendingum og gera úrbætur strax eftir heimsóknir Eflingar í byrjun mánaðar.
„Fyrirtækið brást við og upplýsti um úrbætur. Mosfellsbær mun fylgja málinu eftir gagnvart ræstingafyrirtækinu og leggja áherslu á að tryggt verði að starfsemin sé í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í útboðsskilmálum,“ segir þar.