Einn var fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Hellisheiði í kvöld. Heiðin er lokuð í báðar áttir en mikil hálka er á veginum. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir að fjöldi umferðaróhappa hafi orðið á veginum í kjölfar slyssins en tildrög þess eru ókunn.
Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Magnús segir að slysið hafi orðið um tíuleytið í kvöld og var einn fluttur alvarlega slasaður til aðhlynningar á sjúkrahús. Vettvangsvinna er enn í gangi og gæti því liðið nokkur tími þar til vegurinn verður opnaður.