Þrjú umferðarslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi nú í kvöld. Í einu þeirra slasaðist einn alvarlega.Þetta kemur fram í tilkynningu.Lögreglan fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Hellisheiði á tíunda tímanum í kvöld. Einn einstaklingur var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild eftir áreksturinn. Viðbragðsaðilar frá Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu komu á vettvang.Mikil hálka var á vettvangi. Skömmu síðar barst tilkynning um annað slys á Hellisheiði, en þar var um þriggja bíla árekstur að ræða, en slys voru minniháttar.
Þrjú umferðarslys á Suðurlandi - Einn alvarlega slasaður