Breskur maður á fertugsaldri var handtekinn fyrir að nauðga smáhestsfola. Kenndi hann áfengisneyslu og ADHD greiningu sinni um það.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Aaron Maybank, 35 ára maður, hefur verið ákærður fyrir að nauðga smáhesti í reiðskóla í bænum Sevenoaks, suðvestan við London.Hafði starfsfólki skólans grunað að eitthvað undarlegt væri að gerast með dýrin og settu upp öryggismyndavélar. Hegðun þeirra hafði breyst mikið á þriggja mánaða tímabili. Brá þeim mjög þegar það sá myndband Maybank að misnota einn hestinn.
Nauðgaði smáhestsfola og kenndi ADHD um það