Er greint frá þessu í umfjöllun The Hollywood Reporter en þar er haft eftir heimildum að meðal þeirra sem séu væntanlegir í prufutökur sé hinn 36 ára gamli Callum Turner en hann er Breti, líkt og njósnarinn. Turner lék nýverið í rómantísku gamanmyndinni One Night Only en hann gekk að eiga söngkonuna Dua Lipa í vor.
Þá hefur miðillinn einnig eftir heimildum að leikarinn Jack Lowden, sem er einnig 36 ára gamall en hins vegar skoskur, sem hefur meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Slow Horses. Hann, rétt eins og Turner, er giftur stórstjörnu en hann og leikkonan Saoirse Ronan giftu sig við látlausa athöfn árið 2024 og eiga saman eitt barn.
Samkvæmt tveimur heimildarmönnum eru tökurnar á áætlun núna um helgina og fara þær fram í London. Ekki liggur fyrir hverjir aðrir hafi fengið boð í prufu. Heimildarmenn hafa sagt að að minnsta kosti þrír leikarar taki þátt og annar heimildarmaður að allt að fimm kunni að máta smókinginn.
Þá hafði sá orðrómur verið á kreiki um að enski leikarinn Jack O’Connell, sem er einmitt líka 36 ára gamall, kæmi til greina en svo virðist ekki vera, samkvæmt heimildarmönnum Hollywood Reporter. Jacob Elordi, sem gerði það gott sem Nate í Euphoria, mun samkvæmt sömu heimildarmönnum ekki mæta í prufu.
Kanadíski leikstjórinn Denis Villeneuve var síðasta sumar ráðinn til að leikstýra næstu og 26. kvikmyndinni um breska spæjarann 007. Síðan þá (og sennilega aðeins fyrr) hefur staðið yfir leit að þeim sem mun leika spæjarann geðþekka. Ekki er þó mikill tími til stefnu því samkvæmt skipulagi MGM-Amazon eiga tökur á myndinni að hefjast á næsta ári.