Meirihlutinn í borginni vill stofna nýtt stig í skólakerfinu til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, svokölluð dagheimili. Útfærsla þess verður í höndum nýs leikskóla- og daggæsluráðs.
Þetta sagði Hildur Björnsdóttir, sem tekur við borgarstjórastólnum í dag, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hún segir nýjan meirihluta vilja leita fjölbreyttra leiða í leikskólamálum.
„Við erum með fyrirmynd núna þar sem Arion banki hefur opnað daggæslu fyrir börn starfsmanna. Við höfum það líka á okkar verkefnalista, við viljum innleiða bara nýtt stig í þetta kerfi sem væri þá dagheimili. Það væri þá svona millistig sem tekur við börnum eftir fæðingarorlof og undirbýr þau fyrir leikskólann, einhvers konar brú yfir í leikskólann,“ segir Hildur.
„Og það væri einfaldara í uppsetningu vegna þess að við erum auðvitað með mjög stífan, og það er auðvitað bara vel, en við erum með stífan ramma utan um leikskólann og mjög dýrt leikskólakerfi í samanburði þjóða, þannig að þetta gæti verið góð lausn til þess að losa þrýsting á þessu kerfi.“
Vill flýta Miklubrautargöngum með einkaframkvæmd og gjaldtöku
Það eru mörg mál á dagskrá fyrsta borgarstjórnarfundar nýs meirihluta í dag. Þeirra á meðal er tillaga um að fela borgarstjóra að fara þess á leit við ríkið og hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að hefja samtal um endurskoðun samgöngusáttmálans. Meirihlutinn vill endurskoða skipulag Suðurlandsbrautar, falla frá áætlunum um gjaldtöku á stofnleiðum og flýta Miklubrautargöngum.
„Við erum ekki á móti því að ný göng, nýir stofnvegir í göngum, yrðu fjármagnaðir með gjöldum. Það er annað sem við viljum fá út úr þessari endurskoðun, að við viljum kanna möguleikann á því að Miklubrautargöng, sem eru aftast í framkvæmdaröðinni í sáttmálanum þannig að við myndum sjá þau eftir 15, jafnvel 25 ár ef maður er raunsær, við myndum vilja taka þau þarna út og koma þeim í einkaframkvæmd og þá yrðu þau fjármögnuð með hóflegri gjaldtöku. En þegar við setjum gjöld á vegi þá þarf alltaf að bjóðast önnur leið fyrir þá sem ekki vilja greiða fyrir greiðari leið.“
Hægt er að hlýða á viðtalið við Hildi í heild í spilaranum hér að neðan. Þar ræddi hún auk skóla- og samgöngumála um fjármál borgarinnar og yfirvofandi niðurskurð.