Vegna skipulagsbreytinga og umfangsmikilla framkvæmda á Landakoti verða um 40 störf þar lögð niður. Flestum þessara starfsmanna, sem allir störfuðu á sömu deildinni, verða hins vegar væntanlega boðin ný störf, og vonast er til að flestir þeirra sem fá slíkt boð þiggi það.DV barst ábending um að um það bil 40 starfsmönnum á Landakoti hefði verið tjáð að störf þeirra yrðu lögð niður og þeim því sagt upp en minna ber á í því samhengi að slíkt er heimilt samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Nokkrir tugir starfa lagðir niður á Landakoti - „Leita allra leiða til að finna starfsfólki önnur störf“