Hlé var gert á þingfundi nú fyrir skemmstu eftir að mótmælendur trufluðu ræðu Snorra Mássonar með lúðrablæstri og frammíköllum.
Til umræðu var frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöðvar, þar sem útlendingar verða vistaðir áður en þeim er vísað úr landi.
Ingvar Þóroddsson sat í sæti forseta Alþingis og var fljótur að gera hlé á þingfundinum eftir að mótmæli hófust.
Erfitt er að greina orðaskil í köllum mótmælenda en svo virðist sem öskrað sé „skammist ykkar!“ af þingpöllunum.
