Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Miðflokksins, telur þörf á skýrara kostnaðarmati á fundar- og nefndarstörfum borgarinnar, sem hann segir að sé lítt eða ekki sýnilegt yfirstjórn borgarinnar, hvað þá skattgreiðendum.
Lagði hann fram tillögu á síðasta borgarráðsfundi þess efnis að upplýst yrði um kostnað við fundahöld og skýrsluskrif í borgarkerfinu jafnóðum.
Með því telur hann að auðveldara verði að meta hverju sinni hvort slíkur kostnaður sé réttlætanlegur, auk þeirra tafa sem skýrsluskrif geta haft í för með sér á málshraða í stjórnkerfinu.
Bendir hann á í tillögunni að erfitt geti reynst að meta kostnað við fundahöld og skýrsluskrif með nákvæmum hætti og vísar hann því til erlendra aðferða sem þróaðar hafa verið til að reikna út slíkan kostnað. Þessar reikniaðferðir hafi öðlast viðurkenningu og talið er að þær gefi góða hugmynd um áðurnefndan kostnað.