Héraðssaksóknari hefur ákveðið að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjartalæknis til Landsréttar. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Mbl.is greindi fyrst frá.
Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019.
Málinu var vísað frá á þeim grundvelli að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað með sviptingu lækningaleyfis árið 2021. Þar reyndi á ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsingu. Samkvæmt reglunni má ekki refsa fólki tvívegis eða gera því að sæta tvöfaldri málsmeðferð vegna sama máls.
Skúli Tómas endurheimti lækningaleyfið 2024 og í fréttum í gær kom fram að hann snúi fljótlega aftur til starfa á Landspítalanum. Forsvarsmenn spítalans segja ekkert því til fyrirstöðu sem stendur en að brugðist verði við ef niðurstaðan verður önnur á æðra dómsstigi.