Íbúum í suðaustur Noregi brá í brún þegar jarðskjálfti af stærðinni 3,6 að stærð reið yfir klukkan 09:24:54 að staðartíma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín rétt norðaustur af Osló, nálægt miðbæ Lillestrøm og fannst vel á stóru svæði. Þetta er stærsti skjálfti sem mælst hefur í austurhluta Noregs síðan 2004.
Fólk sem var statt í húsnæði NRK í Marienlyst í Osló lýsa skjálftanum sem miklum dynk og hristing í tæplega tíu sekúndur.
Grunnir jarðskjálftar verða ekki oft á þéttbýlissvæðum í Noregi, þeir verða oftast dýpra í jörðu, á 10-20 kílómetra dýpi, og finnast því ekki eins glögglega. Samkvæmt bráðabirgðamælingum virðist þessi skjálfti hafa verið á 5-10 kílómetra dýpi.
Lögreglan í Osló greindi frá því að verið væri að kanna hvort skemmdir hefðu orðið vegna skjálftans en engar slíkar tilkynningar hafa borist enn.
Unnið er að því að greina skjálftann.
Fréttin hefur verið uppfærð eftir að nýjar og uppfærðar tölur bárust um stærð skjálftans.