Frá og með 27. maí 2027 hefur flugfélagið American Airlines áætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og bandarísku borgarinnar Fíladelfíu. Flogið verður daglega yfir sumartímann á Airbus A321neo-flugvél sem tekur 196 farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia.
„American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru.“
Frá Fíladelfíu er hægt að ferðast áfram til meira en 100 áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin og til annarra heimshluta.