Vanlíðan innan háskólasamfélagsins vegna ástandsins í Miðausturlöndum er það mikil að nemendaráðgjöf Háskóla Íslands efnir til sérstaks stuðningsfundar á morgun fyrir nemendur og starfsfólk sem orðið hefur fyrir sálrænum áhrifum vegna átakanna.
Í fundarboði sem sent var út á vegum HÍ er spurt:
„Hefur þú orðið fyrir sálrænum áhrifum vegna yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum?“
Fram kemur að sálfræðingar á vegum nemendaráðgjafar muni leiða fundinn og veita andlegan stuðning þeim sem eiga erfitt vegna frétta og þróunar mála á svæðinu.
Stuðningsfundur vegna átaka í Miðausturlöndum
Samkvæmt fundarboðinu fer fundurinn fram á ensku og er ætlaður bæði nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands.
Átökin í Miðausturlöndum hafa verið áberandi í alþjóðlegri umræðu undanfarin misseri, fyrst í kjölfar hryðjuverkanna í Ísrael 7. október 2023 og síðan vegna stríðsátaka á Gasa-svæðinu, auk vaxandi spennu milli Írans annars vegar og Ísraels og Bandaríkjanna hins vegar.
Stríðsátök á svæðinu hafa haft víðtæk áhrif, bæði pólitísk og efnahagsleg, meðal annars á olíumarkaði og alþjóðlega skipaflutninga.
Ekki sambærileg úrræði vegna Úkraínustríðsins
Nútíminn hefur ekki heimildir fyrir því að sambærilegur stuðningsfundur hafi verið haldinn innan Háskóla Íslands vegna stríðsins í Úkraínu, sem staðið hefur yfir frá árinu 2022.
Það stríð hefur kostað gríðarlegt mannfall og haft áhrif á milljónir manna. Þá eru tengsl Íslendinga við bæði Úkraínu og Rússland að mörgu leyti meiri en tengsl landsins við Miðausturlönd.
Sú staðreynd að sérstakur stuðningshópur sé nú haldinn vegna ástandsins í Miðausturlöndum vekur því spurningar hjá sumum um hvort ólík átök í heiminum fái mismunandi athygli innan íslenskra stofnana.