Ekstra bladet hefur þetta eftir Rune Nørgaard hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn.
Maðurinn var handtekinn í verslun Cirkle K í nágrenni við flugvöllinn en lögreglan staðfestir ekki við blaðið hvort hann hafi verið vopnaður.
Maðurinn er sagður búa í Danmörku en ekki vera danskur ríkisborgari.
Nørgaard segir við Ekstra bladet að vegfarendum hafi ekki stafað hætta af manninum né flugvallargestum.