Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings.
Landsréttur sakfelldi Steinu í febrúar fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa árið 2021 banað sjúklingi á geðdeild Landspítalans með því að hella næringardrykk upp í hann með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Henni var þó ekki gerð refsing.
Mál Steinu hefur velkst um í dómskerfinu árum saman. Hún var fyrst sýknuð í héraðsdómi áður en Landsréttur ómerkti þann dóm og vísaði málinu aftur heim í hérað. Síðan þá hefur hún verið sakfelld í héraði og Landsrétti.
Hæstiréttur telur að málið hafi verulega almenna þýðingu og féllst því á að taka málið fyrir.