Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Félagsstofnun stúdenta sé óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun og hækkunin sé tilkomin vegna aukins rekstrarkostnaðar auk þess sem rétt framlag til viðhalds hafi ekki náðst úr rekstrinum undanfarin ár.
„FS hefur undanfarin ár haldið aftur af nauðsynlegum leiguhækkunum, en mikilvægt er að tryggja að reksturinn sé sjálfbær til framtíðar. Er þetta liður í því ferli.“