Grjót féll á veginn um Kambaskriður, að því að talið er seint í nótt, og þurfti að hreinsa það af veginum í morgun.
Austurfrétt greinir frá grjóthruninu. Þar er haft eftir Hinriki Þór Einarssyni, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, að stærstu tveir til þrír steinarnir hafi verið á stærð við heimilisþvottavélar. Að auki hafi fallið niður sex steinar á stærð við örbylgjuofna. Að auki var talsvert af smágrjóti.
Í frétt Austurfréttar segir að íbúar hafi lýst áhyggjum af grjóthrunshættu, meðal annars þar sem farið er með skólabörn þarna um á hverjum degi.