Garðyrkjubændur keppast nú við að ná útiræktaða grænmetinu sínu í hús og þeir garðyrkjubændur sem eru með ræktunina í upphituðum gróðurhúsum eru stöðugt að tína uppskeruna af plöntunum.
Á morgun verður haldin sérstök uppskeruhátíð á Flúðum og næsta nágrenni þar sem allir eru velkomnir að mæta.
Aldís Hafsteinsdóttir er sveitarstjóri Hrunamannahrepps.
„Þessi hátíð hefur verið árlega hér í mörg ár þar sem því er fagnað að uppskeran sé komin í hús. Hér er náttúrulega mjög mikið framleitt af hvers kyns grænmeti og auðvitað mikið meira en það, þetta er mikið matvælahérað og mikil matvælasveit. Það verður markaður hér í félagsheimilinu þar sem það er verið að selja alls konar afurðir, grænmeti, kjöt, hannyrðir og handverk og annað slíkt. Svo er líka verið að selja grænmeti bara beint frá framleiðendum i húsnæði á þeirra vegum,” segir Aldís.
Þannig að það verður hægt að heimsækja grænmetisbændur og fá smakk eða hvað?
„Já, það er gaman að segja frá því að það eru hér mjög stórtækir aðilar í útiræktun og þau selja svo mikið á uppskeruhátíðinni, Þröstur og Sigrún, að þau eru ekkert að koma með grænmetið í félagsheimilið, það er bara opið inni hjá þeim í Sneiðinni, sem hún heitir, og þar mokast út gómsætt grænmeti á góðu verði og eins í Sólskinsbúðinni og á fleiri stöðum,” segir Aldís.
En uppskeruhátíðin hefst með messu.
„Já, við byrjum að sjálfsögðu að þakka fyrir gjafir jarðar og byrjum í uppskerumessu í Hrunakirkju klukkan ellefu og svo opnar í félagsheimilinu klukkan eitt og það er opið til fjögur og svo er auðvitað bara líf og fjör í öllu sveitarfélaginu hér á Flúðum og í sveitunum hér í kring allan daginn,” segir sveitarstjóri Hrunamannahrepps.