Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi
August Hanning er grunaður um að hafa aflað leynilegra gagna úr leyniþjónustunni fyrir ráðgjafarstörf sín og hugsanlega komið hluta þeirra til erlendra njósnara. Fyrrverandi samstarfsmaður hans er grunaður um að hafa selt honum um 2.000 leyniskjöl.
Dómstóll úrskurðaði í dag að August Hanning, fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar, skyldi áfram vera í gæsluvarðhaldi eftir að hann var handtekinn vegna gruns um njósnir og landráð. Fyrrverandi aðstoðarmaður hans var einnig handtekinn, grunaður um að hafa útvegað honum leyniskjöl.
Að sögn saksóknara aflaði Hanning, sem er áttræður og stýrði BND, leyniþjónustu Þýskalands á sviði erlendra málefna, frá 1998 til 2005, sér ólöglega leynilegra upplýsinga frá stofnuninni eftir að hann hóf ráðgjafarstörf á einkamarkaði. Hann kann að hafa komið hluta upplýsinganna til erlendra njósnara.
Fyrrverandi skrifstofustjóri Hannings, sem saksóknarar hafa aðeins nafngreint sem Manfred D., var einnig úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald meðan rannsókn stendur yfir.
Manfred D. starfaði áfram hjá stofnuninni fyrir eftirmenn Hannings til mars 2026. Hann er grunaður um að hafa selt fyrrverandi yfirmanni sínum um 2.000 leyniskjöl sem Hanning notaði við ráðgjafarstörf sín.
Leon Kruse, lögmaður Hannings, sagði við AFP að skjólstæðingur sinn væri „sóttur til …