For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ - Vísir

For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ - Vísir

For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ - Vísir

Þann 1. maí þessa árs tók útivistartími barna og unglinga breytingum en frá þeim tíma máttu börn tólf ára og yngri vera úti til klukkan tíu á kvöldin og þrettán til sextán ára unglingar til miðnættis. Gilda þessar reglur frá því 1. maí til 1. september.

Nýjar reglur taka svo við og eiga við yfir skólaárið en þá mega börn 12 ára og yngri lengst vera úti til klukkan átta en börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan tíu á kvöldin.

Þessi færsla er meðal þeirra sem blaðamaður rak augun í við vinnslu fréttarinnar.

Foreldrum er svo leyfilegt að bregða út af reglunum og er síðari hópnum leyfilegt að vera úti á heimleið frá „viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu“ en aldur miðast við fæðingarár.

„Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á vefnum Ísland.is en óljóst er hver tilgreindur tími er enda er tímabilið einungis afmarkað í annan endann.

Fari eftir aðstæðum

Nú hefur sú spurning vaknað hjá undirritaðri sem og netverjum, hvenær er börnum leyfilegt að fara aftur út? Það er skýrt hvenær þau þurfi að vera komin heim á kvöldin en svo virðist sem hvergi komi fram hvenær þau megi fara aftur af stað á morgnana.

Unnar Þór Bjarnason, verkefnastjóri samfélagslögreglu, ræddi við blaðamann um útivistartíma barna.Vísir/Stefán

„Æðisleg pæling, fékk þessa spurningu í fyrsta skipti um daginn frá unglingum,“ segir Unnar Þór Bjarnason hjá samfélagslögreglunni en hann kom þá að eigin sögn með dæmi um dreng sem fannst einn á ferð í Hafnarfirði um klukkan fimm. Sá hafi sagst vera nývaknaður og einfaldlega ætlað að byrja daginn snemma.

Hann hafi verið keyrður heim til sín þar sem rætt hafi verið við foreldra hans. Þau hafi ekki haft grænan grun um að drengurinn hafi verið farinn að heiman.

Unnar minnist á að sumir fari á æfingar eldsnemma á morgnana, svo sem þeir sem æfi skauta eða sund, en þá væru foreldrar barnanna upplýstir um æfingartíma og ferðir barnanna sinna.

„Við hefðum byrjað á því að keyra hann beint heim nema hann væri bara með bakpokann, fyrir utan Egilshöll og á leiðinni á skautaæfingu. Öll ljós kveikt þar og eitthvað,“ segir Unnar og bætir við að „þetta var bara allt frekar skrýtið og hann var í rauninni ekkert að fara neitt.“

Miðar við sjöleytið 

Ef það leiki einhver vafi á ástæðu þess að barn sé einsamalt á ferð á næturnar eða mjög snemma á morgnana bregði lögregla nánast undantekningalaust á það ráð að skutla barninu heim og ræða við foreldra eða forráðamenn þess.

„Þannig að þetta er svakalega góð spurning og er örugglega eitthvað fyrir alþingismann að svara: hvenær er dagur og hvenær nótt, hvenær maður bjóði góðan daginn og hvenær gott kvöld,“ segir Unnar.

Hann rifjar upp að fyrir nokkrum vikum hafi hann tekið eftir því að íbúi í blokkinni sem hann býr í hafi verið byrjaður að æfa sig í því að spila á píanó árla morguns.

„Þá sá ég húsreglurnar skilgreina það að allt fyrir klukkan sjö sé nótt. Þannig að ég myndi kannski nota það sem þumalputtareglu,“ segir hann en ítrekar að það fari mjög mikið eftir aðstæðum hvort börn á ferðinni snemma á morgnana veki athygli annarra vegfarenda.

„Ef þú ert eitthvað ógeðslega snemma á ferðinni og sérð einhvern gæja á hjóli klukkan sjö um morguninn þá myndir þú ekkert skipta þér af því.“

Sumt veki meiri áhyggjur en annað

Aftur á móti fengi lögreglan líklega tilkynningar ef sæist til barns sem færi illa klætt og eitt úti, hvað þá um vetur, fyrir klukkan átta á morgnana. Það sé frekar betra að athuga með börnin en ekki.

„Þá er kannski allt í lagi fyrir okkur að heyra í foreldrum hans, þau reynast svo bara vera í sumarbústað og halda að hann sé hjá ömmu sinni,“ segir Unnar og bætir við að honum finnist niðurstaðan nokkurn veginn vera að hægt sé að miða við að börn fari ekki ein út fyrir klukkan sjö nema þau eigi að mæta á æfingu, keppnismót eða annað slíkt.

„Svo er, eins og var oft hérna í gamla daga, einhver að bera út blaðið eldsnemma á morgnana, hann er með morgunblaðstösku um mittið og virkar dauðþreyttur og er að labba á milli húsa að sannarlega vinna, þá myndi enginn hringja vegna þess.“

Það berist aðallega ábendingar um börn sem virðast vera að „frjósa úr kulda í djöfulsins ofsaveðri fyrir utan einhverja Nettóbúð í Mjóddinni“, og fólk fari þá að hugsa „aumingja barnið“ og hringir og lætur lögreglu vita.

#foreldrar #fyrir #innivistartíma #sér #velta

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262911512d/foreldrar-velta-fyrir-ser-innivistartima-barna-

📰 Aðrar fréttir

Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
Fyrst var íbúum í Longyearbyen á Svalbarða ráðið frá því að drekka vatn úr krana í september í fyrra þegar styrkur mangans í því mældist tuttugu og fi...
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
📅 20.10.2026 👁️ 0
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
Bandaríkjamenn eru klofnir í afstöðu sinni til þess hver framtíð hins dauðadæmda morðingja Christu Pike eigi að vera. Þetta kemur fram í nýrri könnun....
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
📅 20.10.2026 👁️ 0
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
„Í dag er ég nákvæmlega jafngamall og pabbi var þegar hann lést þann 10. febrúar 1983. Hann lifði í 19.983 daga - jafnmarga daga og ég hef lifað.“Svon...
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
📅 20.10.2026 👁️ 0
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar á Laugum var afturkallað eftir kæru fimm íbúa. Fyrirtækið bíður úrskurðar um bráðabirgðaleyfi.Samherji er stærs...
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
„Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innih...
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
📅 20.10.2026 👁️ 0
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu sem eru grunaðir um árásir á diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu. Árásir landtökufólks á ólífubændur eru þeg...
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
📅 20.10.2026 👁️ 0
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfé...
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
Saksóknarayfirvöld í Danmörku hafa gefið út að mennirnir tveir hafi í gær tekið myndir af höfuðstöðvum varnarmálafyrirtækisins MyDefence á Norður-Jótl...
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
📅 20.10.2026 👁️ 0
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstu vikum. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvo...
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
📅 20.10.2026 👁️ 0
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
Hiti er undir frostmarki á fjallvegum á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þar af leiðandi er hálka og krapi á nokkrum vegum og ökumenn verða að hafa varan...
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þess...
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum - Vísir

Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka ma...
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem ...
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
📅 20.10.2026 👁️ 2
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti ...
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
Ukraine had accused the US of withholding key intelligence - a claim rejected as "scandalous" by Washington.
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
📅 20.10.2026 👁️ 2
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
Tommy Lee, klámmyndaleikari og fyrrverandi hnefaleikamaður, hefur verið orðaður við að vera barnsfaðir hinnar umdeildu klámstjörnu Bonnie Blue. Tommy ...
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
📅 20.10.2026 👁️ 2
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fó...
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
📅 20.10.2026 👁️ 2
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
The government is expected to accept all 27 recommendations made in the review by ex-Ofsted boss, Sir David Bell.
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
📅 20.10.2026 👁️ 2
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagni...
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fó...
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
📅 20.10.2026 👁️ 2
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
HarmageddonÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stór...
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinu...
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann ...
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
📅 20.10.2026 👁️ 2
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum t...
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
📅 20.10.2026 👁️ 3
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
Leikarinn Jason Sudeikis opnar sig um það sem fór úrskeiðis í sambandi hans og leikkonunnar og leikstjórans Oliviu Wilde.Leikarinn tjáir sig venjulega...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kj...
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
📅 20.10.2026 👁️ 3
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var...
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
Ungt par í Bretlandi missti dóttur sína aðeins tíu daga gamla úr HSV vírusnum, sem veldur frunsu. Móðirin segist berjast við sektarkennd þar sem líkle...
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði h...
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfull...
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
📅 20.10.2026 👁️ 2
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
Íris Erlingsdóttir skrifar: Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjó...
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
📅 20.10.2026 👁️ 2
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirbu...
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka ...
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyr...
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
📅 20.10.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvan...
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, s...
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og...
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
📅 20.10.2026 👁️ 4
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og sérstaklega hættulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Maðurinn var...
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
📅 20.10.2026 👁️ 4
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru manns sem sótt hafði um starf hjá Vegaerðinni. Hafði hann krafist upplýsinga um nöfn allra annarr...
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
📅 20.10.2026 👁️ 3
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
Counter-terror police say the men have been arrested on suspicion of assisting a foreign intelligence service.
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 2
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Two men re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident

Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son m...
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sa...
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með þ...
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga ...
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir að hún verði stundum hissa á því hvað hún er fljót að bregðast við því versta, það sé e...