Yfir 160 flóttamönnum, þar af sautján börnum, var bjargað í Atlantshafi úti fyrir strönd Márítaníu í Vestur-Afríku. AFP hefur eftir landhelgisgæslu landsins að fólkið hafi verið uppgefið eftir átta daga á sjó á ótryggu sjófari sem hafi verið með bilaða vél. Fólkið lagði á haf út frá Banjul, höfuðborg Gambíu, og var förinni heitið til Kanaríeyja, sem tilheyra Spáni.
Hundruðum manna hefur verið bjargað í landhelgi Máritaníu undanfarna mánuði í þeirri von að komast til Evrópu. Stór hluti komst ekki alla leið.
Flestir sem leggja á þessa leið eru frá Senegal, Gambíu, Gíneu og Malí. Fólkið vonast til þess að komast út úr fátækt og hætta lífi sínu með því að fara á haf út á úr sér gengnum bátum. Evrópuríki hafa undanfarna mánuði dregið úr hælisveitingum og aukið við landamæraeftirlit.