„Ég er kominn á eftirlaunaaldur og þá finnst mér eðlilegt að ég stigi til hliðar og einhver yngri einstaklingur taki við,“ segir Finnbjörn í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá.
„Ég finn mér eitthvað annað að gera.“
Hann lætur af störfum á næsta þingi Alþýðusambandsins sem fer fram um miðjan næsta mánuð.
Finnbjörn tók við embætti forseta ASÍ árið 2023 en þar áður var hann formaður Samiðnar og Byggiðnar. Hann tók við af Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni. Aðspurður vildi Finnbjörn ekki spá um hver yrði mögulega arftaki hans.
„Það þarf að vanda til verka, við þurfum að umgangast allt og alla með virðingu og þá vegnar okkur ágætlega,“ segir hann aðspurður hvaða skilaboðum hann myndi vilja koma áleiðis til arftakans.
Störf forsetans séu eilífðarverkefni.