Ákæruvaldið fer fram á fimm ára fangelsisdóm yfir hinum ákærðu í Höfðatorgsmálinu í dag. Þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars.
Málfutningur fer fram á lokadegi aðalmeðferðar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tveir sakborningar eru viðstaddir málflutning í dómssal ásamt túlkum en hinn þriðji er staddur erlendis og gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað á fyrri dögum aðalmeðferðar.
Réttargæslumaður brotaþola sagði að farið væri fram á 10 milljónir króna í miskabætur ásamt um 98 þúsund krónum í skaðabætur fyrir útlagðan kostnað.
Silja Rán Arnarsdóttir, saksóknari fór í málflutningi sínum yfir að sú árás sem brotaþoli varð fyrir hafi sett hann í lífshættulegt ástand. Því hafi hún verið tilraun til manndráps fremur en hættuleg líkamsárás.
Hún benti meðal annars á að réttarlæknir hefði sagt áður við aðalmeðferðina að hefði brotaþoli ekki komist undir læknishendur hefði verið hætta á að hann hefði dáið.
Þá sagði hún að skýrlega hefði komið fram að staðið hefði til að beita brotaþola ofbeldi og ákærðu hefðu beðið eftir honum í bílakjallaranum vopnaðir. Þá hefði einn ákærðu séð manninn áður en hann keyrði á hann. Honum hefði því átt að vera ljóst í hvað stefndi.
Í ákæru er einum mannanna gefið að sök að hafa ekið Land Rover-bifreið á manninn á mikilli ferð, öðrum að hafa barið hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi, og hinum þriðja að hafa stungið manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni. Þriðji maðurinn hefur þó haldið því fram við réttarhöldin að áhaldið sem hann var með hafi verið ákveðin tegund tannbursta sem hann noti til að róa sig niður.
Í ákærunni segir einnig að brotaþoli hafi verið settur í lífshættulegt ástand, hlotið sár í húðberi vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á upphandleggsbeini, mar, bólgur, fleiðusár og eymsli.
Vildi sýna fram á samverknað
Einnig vildi sækjandi færa fram rökstuðning fyrir því að samverknaður hefði verið á milli hinna ákærðu. Hún fór yfir að í fyrri málum hefði verið fallist á samverknað þrátt fyrir að þáttur ákærðu væri mismikill.
Einn maðurinn hefur haldið því fram að skipt hafi verið um bílstjóra áður en ekið var á manninn. Saksóknari fór yfir að bíllinn var ekki í mynd öryggismyndavéla í um 15 sekúndur en maðurinn sást á öryggismyndavél undir stýri áður en bíllinn fór úr mynd og svo aftur þegar bíllinn kom aftur í mynd.
Ákærði sem sagðist hafa verið með tannbursta sagðist ekki kannast við sjálfan sig á mynd á öryggismyndavélum.
Saksóknari benti á að einn maðurinn hefði haldið því fram að hann hefði verið með afríska tannbursta í stað þess að vera með hníf. Hún benti á að enginn slíkur tannbursti hefði fundist heima hjá manninum og einnig hefði enginn slíkur tannbursti verið lagður fram við aðalmeðferðina.
Þá væri undarlegt að maðurinn hefði ekki kannast við sjálfan sig í öryggismyndavélum en hefði engu að síður sagst hafa verið að stilla til friðar umrætt kvöld. Saksóknari taldi því ólíkindablæ á framburði mannsins. Verjendur munu í framhaldi flytja málsvörn fyrir ákærðu.