Slökkvilið Fjallabyggðar fékk tilkynningu um mikinn eld fyrir utan íbúðarhús á Siglufirði í gærdag en enginn var heima í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Þegar slökkviliðið mætti á vettvang hafði eldurinn náð að læsa sig í klæðningu, verönd og svalir. Rúður höfðu gefið eftir vegna hita, segir á Facebook-síðu Slökkviliðs Fjallabyggðar.
Mikið viðbragð var vegna eldsvoðans og slökkviliðsmenn frá Siglufirði og Ólafsfirði tóku þátt í aðgerðum. Örugglega gekk að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu eldsins en nokkurn tíma tók að tryggja að hann bærist ekki í þak hússins.
Eldsupptök eru til rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar á Norðurlandi eystra.