Vaka fjarlægði bíl fatlaðs manns ranglega úr stæði við heimili hans eftir að hann hafði lagt uppi á gangstéttarbrún nokkrum dögum fyrr. Fyrirtækið segir þetta hafa verið mistök.
Guðmundur Birgir Pálsson, íbúi í Norðlingaholti, lagði upp á gangstéttarkant fyrir utan heimili sitt í nokkra klukkutíma á miðvikudaginn. Húsfélag hans tilkynnti það til Vöku.
Fyrirtækið brást ekki við fyrr en nokkrum dögum síðar og fjarlægði bílinn, sem þá var kominn í merkt stæði fyrir fatlaða. „Ég vil meina að þetta sé þjófnaður á bílnum,“ segir Guðmundur.
Fann ekki bílinn um helgina
„Á föstudagskvöldið þá legg ég bílnum í fatlaðrastæði. Svo um morguninn ætla ég að taka bílinn og þá finn ég hann ekki,“ segir Guðmundur.
Hann tilkynnti lögreglu að bílnum hefði verið stolið. Síðar hringdi hann í Vöku og þá sagði starfsmaður honum að bíllinn hefði verið tekinn óvart og honum skilað.
„En hann lætur okkur ekkert vita hvar bíllinn er. Þannig að ég var að fara að leita að bílnum.“
Þetta segir Guðmundur að hafi tekið töluverðan tíma. Barnabarn hans fann bílinn um 150 metra frá heimili hans. Sjálfur er Guðmundur öryrki og á erfitt með gang eftir alvarlegt fjórhjólaslys fyrir sjö árum.
Mistök af hálfu Vöku
„Það voru mistök gerð,“ segir Tómas Beck, deildarstjóri akstursdeildar Vöku, um það að bíllinn hafi verið fjarlægður úr stæðinu.
Hann segir að bílnum hafi verið skilað annað því ekkert stæði var laust. Þá hafi einnig verið mistök að láta Guðmund ekki vita hvar bíllinn var.