„Ég svaf í ruslageymslum, átti úlpu frá 66, ískalt úti. Ég hékk í búðum sem eru opnar á nóttunni. Maður verður svo þakklátur fyrir að fá mat. Maður er bara týndur einhvers staðar, það er eins og maður sé ekki til,“ segir Svava Helga Sveinsdóttir. Hún er heimilislaus og treystir á góðgerðarsamtök og velviljað fólk til að lifa dag frá degi. Hún missti húsnæði sitt í september í fyrra, síðan þá hefur hún meðal annars sofið í ruslageymslum, gistiskýlum, sjúkrastofnunum og nú í tjaldi.
„Ég veit ekki af hverju ég sé alltaf ljós þegar það er svona mikið myrkur“