Dómari í máli gegn Lindsay Clancy, sem er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, hefur ógilt réttarhöldin. Kviðdómur komst ekki að niðurstöðu um sakhæfi Clancy.
Segist hafa heyrt raddir sem skipuðu henni að myrða börnin
Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, Coru, fimm ára, Dawson, þriggja ára, og Callan, sem var átta mánaða, á heimili fjölskyldunnar í janúar 2023. Hegðun hennar hafði breyst eftir fæðingu yngsta barnsins í maí 2022.
Hún þjáðist af kvíða, átti erfitt með svefn og var hrædd við að vera ein. Fyrir dómi sagði fyrrverandi tengdamóðir Clancy hana hafa sagt sér frá vanlíðan sinni í nóvember sama ár.
Síðdegis 24. janúar 2023 fór eiginmaður Clancy í apótek. Þegar hann sneri til baka fann hann Clancy alvarlega slasaða í bakgarði hússins sem þau bjuggu í í Duxbury í Massachusetts í Bandaríkjunum. Hún virtist hafa fallið út um glugga á efri hæð hússins.
Eftir að hafa hringt á neyðarlínuna fann eiginmaðurinn börnin í kjallara hússins, eldri börnin voru látin. Yngsta barnið var enn á lífi en lést á sjúkrahúsi þremur dögum síðar.
Clancy hefur viðurkennt að hafa orðið börnunum að bana en ákæruvaldið heldur því fram að hún hafi skipulagt morðin og eigið sjálfsvíg.
Lögmaður hennar segir að hún hafi þjáðst af alvarlegum geðsjúkdómi, fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun. Hún segist sjálf hafa heyrt raddir sem skipuðu henni að myrða börnin.
Þungbær ákvörðun en kviðdómurinn komst ekki að samhljóða niðurstöðu
Réttarhöldin stóðu yfir í um fimm vikur en kviðdómi hefur ekki tekist að komast að niðurstöðu um sakhæfi Clancy. Dómarinn ógilti því réttarhöldin.
Málið hefur vakið mikla athygli og umræður um heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. Í fréttavakt sem breska ríkisútvarpið, BBC, heldur úti segir að fólk hafi tekið andköf í dómsalnum þegar dómarinn greindi frá ákvörðun sinni. Sumir hafa fylgst með réttarhöldunum daglega.
Kviðdómur lét ákæruvaldið og verjendur fá bréf stuttu áður en dómarinn tók þessa ákvörðun. Í bréfinu kom fram að það væri þungbær ákvörðun en kviðdómurinn hefði ekki getað komist að samhljóða niðurstöðu um sakhæfi Clancy.
Kevin Reddington, verjandi Clancy, óskaði eftir því við dómarann að hann myndi biðja kviðdóminn að ræða málið enn frekar en ákæruvaldið sætti sig við ógildinguna.
Reddington sagðist vilja áfrýja ákvörðun dómarans og fær hann klukkustund til að leggja hana fram.
Ný réttarhöld eða niðurfelling málsins
Verði réttarhöldin ógild eru nokkrir möguleikar í stöðunni. Ákæruvaldið getur sótt málið aftur með nýjum kviðdómi eða gert dómsátt. Ákæruvaldið gæti þó líka fellt málið niður.
Algengast er í sakamálum sem þessum að ákæruvaldið óski eftir nýjum réttarhöldum.
Verði málið sótt á ný verður Clancy vistuð áfram á réttargeðdeildinni sem hún hefur verið á hingað til. Verjendur hennar gætu beðið um að gæsluvarðhald yfir henni verði endurskoðað.