Hinn virkilega umdeildi Clavicular, sem er fæddur árið 2005, var ákærður í september fyrir nauðgun, fyrir að hafa byrlað manneskju ólyfjan í því skyni að hafa við hana samræði og fyrir að hafa útvegað einstaklingi undir 21 árs aldri áfengi, er fram kemur í frétt bandaríska miðilsins CBS um málið.
Neitað öllum ásökunum
Ákærurnar eiga rætur að rekja til atviks árið 2025 þegar hann er sakaður um að hafa áreitt og veist að 17 ára stúlku á heimili fjölskyldu sinnar í Massachusetts.
Peters hefur neitað ásökununum og segir að samskiptin hafi verið með samþykki stúlkunnar. Í dag var honum sleppt úr gæsluvarðhaldi gegn 10.000 dala, um 1,2 milljóna króna, tryggingu og honum gert að hafa hvorki samband við ákærandann né birta færslur um hana, auk þess sem hann þurfti að láta vegabréf sitt af hendi.
Ákærandinn á að hafa sagt lögreglufulltrúa frá því að þann 23. maí 2025 hefði Peters pantað fyrir hana Uber-leigubíl að húsi fjölskyldu sinnar, þar sem þau drukku saman áfengi á meðan þau tóku upp og deildu beinu streymi á samfélagsmiðlum.
Á hann síðan að hafa nauðgað henni en lögreglumaðurinn sem tók við kærunni sagðist telja að hún hefði ekki getað veitt samþykki vegna aldurs síns og þeirrar ölvunar sem sjá mátti á henni í streyminu, að því er CBS greindi frá.
Ekki í fyrsta sinn
Þá er þetta alls ekki í fyrsta sinn sem Peters kemst í kast við lögin en í mars var hann handtekinn í Flórída og þá grunaður um að hafa skipulagt slagsmál tveggja kvenna og birt myndband af þeim á samfélagsmiðlum.
Peters tengist að auki annarri rannsókn fiska- og dýraverndarnefndar Flórída sem snýr að myndbandi á samfélagsmiðlum þar sem hann sést ásamt þremur öðrum mönnum skjóta krókódíl í hausinn á fenjasvæðunum í Flórída.
Clavicular er með yfir milljón fylgjendur á TikTok og Instagram og hefur vakið athygli fjölmiðla fyrir öfgafullar aðferðir sem hann hefur beitt í nafni „looksmaxxing“.
Hann hefur viðurkennt að hafa slegið sig með hamri í andlitið og kjálkalínuna og tekið ýmsa stera, sprautur og önnur lyf til að ná fram því sem hann lýsir sem líkamlegri fullkomnun. Hann gefur óspart ráð um hvernig megi virðast karlmannlegur og framkvæmir glæfrabrögð til að hneyksla fylgjendur sína.