Burnham boðar mestu breytingar í 40 ár

Burnham boðar mestu breytingar í 40 ár

Burnham boðar mestu breytingar í 40 ár

„Þetta augnablik markar tímamót fyrir Bretland og leiðir til stærstu breytinga síðustu 40 ár. Nýtt stjórnmála- og efnahagslíkan,“ sagði Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, í sinni fyrstu ræðu fyrir utan Downing-stræti 10, stuttu eftir að Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti í dag.

Burnham var stórorður í ræðunni og sagðist ætla að setja fram áætlun til næstu tíu ára til að breyta bæði breskum stjórnmálum og efnahag. Áætlunin á að koma fram síðar á þessu ári.

Fyrsta verkefni hans sem forsætisráðherra yrði að koma í veg fyrir að fólk svæfi úti en heimilisleysi er vaxandi vandamál í Bretlandi.

Stjórnmálamenn ekki staðið sig nógu vel og þurfi að vera betri

Burnham hóf ræðu sína á að minnast á hið augljósa; hann er sjötti forsætisráðherra Bretlands á tíu árum og sá sjöundi síðan 2016. Theresa May tók við embættinu af David Cameron 13. júlí 2016 eftir að Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Ég er fullkomlega meðvitaður um að ég er sjötta manneskjan síðustu tíu árin til að ganga upp þessa götu, sjöundi forsætisráðherrann síðan 2016. Það gerir þetta augnablik að stund íhugunar og nýrra lausna.“

Hann sagði sína kynslóð stjórnmálamanna þurfa að gera betur og taka á móti nýjum áskorunum. „Bretland þarf að sýna heiminum að við getum endurheimt stöðugleika á ný og þetta er áskorun okkar til að láta stjórnmálin virka, láta þau virka betur.“

Hann sagðist gera sér grein fyrir því að fólk væri orðið leitt á stjórnmálum. „Ég heyri í þér og ég vil vera heiðarlegur við þig. Við höfum ekki staðið okkur nógu vel og við þurfum að vera betri. Við munum verða betri.“

Ætlar að breyta stjórnmálunum

Burnham var kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins á föstudag. Í ræðu sinni þar lagði hann áherslu á að umbreyta efnahagskerfi Bretlands. Á því varð engin breyting í dag.

Hann lofaði nýju stjórnmála- og efnahagslíkani í ræðunni og sagði að mestu breytingar í 40 ár væru væntanlegar.

„Á níunda áratugnum tók Bretland nokkrar rangar beygjur. Stjórnmálavald varð miðstýrt, efnahagsvald einkavætt, stórir hlutar landsins féllu frá iðnaði og hafa enn ekki náð sér á strik.“

Mörgum finnist þeir enn í hnignun og að þeir hafi ekki getu til þess að snúa hlutunum við. „Þess vegna ætlum við að breyta stjórnmálunum til að gera þau að meiri samvinnu, þannig að þau snúist meira um að leysa vandamál en stigagjöf. Og við tökum valdið héðan og færum það inn í öll póstnúmer í landinu, svo hægt sé að gera meira.“

„Rétt gildi og rétt viðmið í hjarta stjórnkerfisins“

Burnham sagðist í ræðunni ætla að kynna nýjar lausnir á háum framfærslukostnaði á morgun. Síðar á þessu ári ætlaði hann að setja fram áætlun til tíu ára til að breyta breskum stjórnmálum og efnahag.

„Hún leggur fram leið frá því hvar við erum núna að því hvar ég tel að við viljum að Bretland verði, hvaðan sem við komum, hvaða stjórnmálaflokk sem við styðjum. En ég get gert eitthvað til að gefa fólki smá andrými núna, einhverja hjálp við framfærslukostnað. Ég ætla að setja fram sumar af þessum aðgerðum frá og með morgundeginum, þar á meðal hvernig við greiðum fyrir þær.“

Burnham sagðist meðal annars ætla að hjálpa fleiri ungmennum að komast inn á vinnumarkaðinn með því að breyta menntakerfinu, veita meiri stuðning í geðheilbrigðismál og að ríkisstjórnin ætli að byggja fleiri íbúðir fyrir almenning.

„Við ætlum að hjálpa fólki að lifa góðu lífi og fjárfesta í velgengni þess frekar en að borga fyrir mistök.“

Hann sagði að sitt fyrsta verk yrði að binda enda á að fólk sofi á götum úti. Crisis eru landssamtök til stuðnings heimilislausum í Bretlandi. Samkvæmt þeirra mati voru tæplega 5 þúsund manns sem sváfu úti að minnsta kosti eina nóttu á Englandi haustið 2024, sem er 91 prósent aukning frá 2021.

„Þetta snýst um að setja rétt gildi og rétt viðmið í hjarta stjórnkerfisins. Ég ætla að setja umhyggju fyrir öðru fólki í forgrunn alls sem ég geri. Ég ætla að leggja mig allan fram og bið ykkur öll að leggja ykkar af mörkum.“

Hann bað Breta um að byggja upp einingu, sameiginlegan tilgang og jákvæðni.

„Við skulum gera þetta að þeirri stundu þegar Bretland byrjar að trúa á ný, stundu sem við vekjum vonina aftur. Þakka ykkur kærlega fyrir.“

#boðar #breytingar #burnham #mestu

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-07-20-burnham-bodar-mestu-breytingar-i-40-ar-481846

📰 Aðrar fréttir

Missti 65 kíló á Ozempic - „En ég er líka að missa vitið, minnið, sjónina, málið og heyrnina“
📅 04.09.2026 👁️ 0
Missti 65 kíló á Ozempic - „En ég er líka að missa vitið, minnið, sjónina, málið og heyrnina“
Fjölskyldufaðirinn Brad Roberts frá Suður-Karólínu léttist um 65 kíló á hálfu ári á Ozempic. Hann var svo ánægður að hann lék í auglýsingu fyrir lyfið...
Skólameistari Hússtjórnarskólans kveður niður algenga mýtu um þvott
📅 04.09.2026 👁️ 0
Skólameistari Hússtjórnarskólans kveður niður algenga mýtu um þvott
Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans, kveður niður algenga mýtu um þvott í myndbandi á TikTok fyrir Milt. Hún svarar spurningunn...
Ríkislögreglustjóra grunar ekki erlend afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu
📅 04.09.2026 👁️ 0
Ríkislögreglustjóra grunar ekki erlend afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu
Ríkislögreglustjóra grunar ekki erlend afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur eng­ar upp­lýs­ing­ar sem benda til þess að er...
Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlut­föllum - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 0
Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlut­föllum - Vísir
Í frétt Guardian segir að Robert Dussey, utanríkisráðherra Tógó, hafi sagt að Tógó hefði lagt ályktunina fram og að hún njóti stuðnings frá hinum 54 a...
Græn­lendingar fá fría læknis­þjónustu í Dan­mörku - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 0
Græn­lendingar fá fría læknis­þjónustu í Dan­mörku - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um 1300 Grænlendingar sæki læknisþjónustu til Danmerkur á ári hverju. Haft er eftir heilbrigðisráðher...
Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunar­byrði - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 0
Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunar­byrði - Vísir
Kviðdómendur hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í málinu í sex daga. Dómarinn William Sullivan bað þá í gær um að leggja sannfæringu sín...
Lægðar­drag teygir sig yfir landið - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 0
Lægðar­drag teygir sig yfir landið - Vísir
Þetta er það sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings veðurstofu Íslands. Á morgun verður vindur með hægasta móti. Dálítil væta með köflum norðan- ...
Study reveals how much Tourist Tax holidaymakers would pay in the Canary Islands?
📅 04.09.2026 👁️ 1
Study reveals how much Tourist Tax holidaymakers would pay in the Canary Islands?
A tourist tax of €2 per person per night could be the most acceptable level for visitors to the Canary Islands and potentially raise around €131 milli...
„Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
„Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ - Vísir
Birgir Örn tók algjöra u-beygju í lífinu árið 2003 og átti hún stóran þátt í að leggja grunninn að því sem hann er í dag. Hödd Vilhjálmsdóttir ræddi v...
Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs - Vísir
Nýja athvarfið hefur verið í undirbúningi um árabil og hafa samtökin staðið fyrir fjölda safnana til að byggja það. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins ...
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Bílaleigur gætu þurft að greiða allt að 25 milljarða
📅 04.09.2026 👁️ 1
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Bílaleigur gætu þurft að greiða allt að 25 milljarða
Skatturinn mun mögulega krefja nokkrar bílaleigur um allt að 25 milljarða króna samtals vegna meints vangoldins virðisaukaskatts af vátryggingum sem þ...
Ók á 190 kílómetra hraða – Lögregla svipti hann ökuréttindum
📅 04.09.2026 👁️ 1
Ók á 190 kílómetra hraða – Lögregla svipti hann ökuréttindum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði venju samkvæmt í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt og eru alls 78 mál bókuð í kerfum lögreglu frá klukkan 1...
Skúrir á stangli
📅 04.09.2026 👁️ 1
Skúrir á stangli
Útlit er fyrir frekar rólegt veður í dag og á morgun verður vindur með hægasta móti. Í dag blæs aðeins, með golu eða kalda, og aðeins rignir. Blautast...
Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kíló­metra hraða - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kíló­metra hraða - Vísir
Í dagbók lögreglu kemur ekki fram hvar maðurinn ók svo hratt en hann var fluttur á lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og ...
Two senior Reform UK officials step down after Channel 4 report
📅 04.09.2026 👁️ 1
Two senior Reform UK officials step down after Channel 4 report
The party has launched an investigation after undercover filming by the broadcaster.
Two Reform UK officials step down after undercover report on party donations
📅 04.09.2026 👁️ 0
Two Reform UK officials step down after undercover report on party donations
Reform says Dan Jukes and James Orr have left their roles as it launches an investigation into the report.
The Canary Islands record one of the hottest September days in 75 years
📅 04.09.2026 👁️ 1
The Canary Islands record one of the hottest September days in 75 years
The Canary Islands have experienced one of their hottest September days in decades, with temperatures in Santa Cruz de Tenerife and Las Palmas de Gran...
Einn enn með stöðu sak­bornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Einn enn með stöðu sak­bornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði - Vísir
Greint var frá því á vef RÚV í gær að málið hafi fyrst farið til ákærusviðs fyrir átta mánuðum. Þá voru fleiri með réttarstöðu sakbornings, þar með ta...
Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin - Vísir
Sanjay Shah var fyrstur til að komast út og var fluttur í herbúðir nepalska hersins í Trishuli. Í kjölfarið var öðrum manni, Kabir Maharjan, einnig bj...
Skrifað undir vilja­yfir­lýsingu vegna jarð­gangna til Eyja - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Skrifað undir vilja­yfir­lýsingu vegna jarð­gangna til Eyja - Vísir
Greint er frá undirritun viljayfirlýsingarinnar á vef Stjórnarráðsins og þar segir að markmiðið sé að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir o...
Skrifað undir vilja­yfir­lýsingu vegna jarð­ganga til Eyja - Vísir

Nína Richter skrifar: Manneskja fyrst, svo týpa
📅 04.09.2026 👁️ 1
Nína Richter skrifar: Manneskja fyrst, svo týpa
Mynd Það eru margir skemmtilegir vinklar á því að eiga börn og
Milei segir Falklandseyjar afdráttarlaust tilheyra Argentínu
📅 04.09.2026 👁️ 1
Milei segir Falklandseyjar afdráttarlaust tilheyra Argentínu
Javier Milei forseti sagði í sjónvarpsávarpi að Falklandseyjar tilheyrðu Argentínu og því þyrfti að ná þeim af Bretum. Ekki þyrfti að rökræða málið, s...
Tveimur mönnum bjargað lífs úr göngum
📅 04.09.2026 👁️ 1
Tveimur mönnum bjargað lífs úr göngum
Tveimur byggingaverkamönnum var í dag bjargað lifandi úr göngum vatnsorkuvers í Nepal rúmri viku eftir að hamfaraflóð ollu gríðarlegu tjóni og mannska...
Landsfundur Reform haldinn í skugga dvínandi fylgis og ásakana um lögbrot
📅 04.09.2026 👁️ 1
Landsfundur Reform haldinn í skugga dvínandi fylgis og ásakana um lögbrot
Landsfundur breska Umbótaflokksins Reform UK er haldinn í skugga þess að hann var tilkynntur til Lundúnalögreglunnar eftir nýja umfjöllun á fréttastöð...
Three crucial questions facing Farage at Reform conference
📅 04.09.2026 👁️ 1
Three crucial questions facing Farage at Reform conference
Can the Reform UK leader put his policies into action, and become prime minister?
Watch: Moment workers are rescued from Nepal tunnel
📅 04.09.2026 👁️ 1
Watch: Moment workers are rescued from Nepal tunnel
Rescuers pull two people from a hydropower tunnel more than a week after a massive flash flood devastated the Nepal-China border.
Engin merki enn um að Rússar beini spjótum sínum að Færeyjum
📅 04.09.2026 👁️ 1
Engin merki enn um að Rússar beini spjótum sínum að Færeyjum
Færeysk stjórnvöld telja að landinu standi ekki enn bein ógn af einhvers konar árásum af hálfu Rússa. Yfirvöld og lögregla fylgjast grannt með framvin...
Trump skipar nýjan ráðherra málefna hersins
📅 04.09.2026 👁️ 1
Trump skipar nýjan ráðherra málefna hersins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Adam Telle sem starfandi ráðherra málefna hersins eftir að Dan Driscoll sagði af sér eftir deilur við strí...
Ríkisvaldið veitir Eyjagöngum ráðgjöf um leyfismál og tengingu við vegakerfið
📅 04.09.2026 👁️ 1
Ríkisvaldið veitir Eyjagöngum ráðgjöf um leyfismál og tengingu við vegakerfið
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Haraldur Pálsson og Árni Sigfússon forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf varðan...
Argentine leader says oil firms working off Falklands face sanctions
📅 04.09.2026 👁️ 1
Argentine leader says oil firms working off Falklands face sanctions
Javier Milei reiterates his country's claim on the British overseas territory, saying the "winds of change" favour it.
Argentina to sanction oil firms as Falklands dispute with UK heats up

Argentine leader threatens to sanction oil firms and reiterates Falklands claim

Stjórnvöld vilja að Hæstiréttur aflétti lögbanni á tilskipun um póstkosningar
📅 04.09.2026 👁️ 1
Stjórnvöld vilja að Hæstiréttur aflétti lögbanni á tilskipun um póstkosningar
Bandaríkjastjórn hefur leitað til Hæstaréttar til að fá aflétt banni lægra dómstigs við framkvæmd forsetatilskipunar sem ætlað er að draga úr notkun p...
Zelensky: Friðarnefnd Bandaríkjanna væntanleg til Kyiv á næstu dögum
📅 04.09.2026 👁️ 1
Zelensky: Friðarnefnd Bandaríkjanna væntanleg til Kyiv á næstu dögum
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti kveðst eiga von á friðarnefnd á vegum Bandaríkjanna til Kyiv á næstu dögum. Hann sagði dagsetningu hafa verið ákveðn...
Watch: What it was like in court as Lindsay Clancy's lawyer asked judge to remove juror
📅 04.09.2026 👁️ 1
Watch: What it was like in court as Lindsay Clancy's lawyer asked judge to remove juror
The jury now faces a seventh day of deliberations in the triple-murder trial.
'Miracle' eagle with broken wing soars over Scottish coast
📅 04.09.2026 👁️ 1
'Miracle' eagle with broken wing soars over Scottish coast
A sea eagle that confounded experts by surviving with a broken wing has been spotted back above Scotland's west coast.
Volkswagen ætlar að fækka starfsfólki um 100 þúsund
📅 04.09.2026 👁️ 1
Volkswagen ætlar að fækka starfsfólki um 100 þúsund
Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen ætlar að fækka starfsfólki um hundrað þúsund fyrir lok þessa áratugar.Fyrirtækið segist þegar hafa samið við verka...
Girl group Katseye are missing two members, but their tour still dazzles
📅 04.09.2026 👁️ 1
Girl group Katseye are missing two members, but their tour still dazzles
Reduced but resilient, girl group Katseye received a hero's welcome in London.
Volkswagen board approves plan to cut another 50,000 jobs
📅 04.09.2026 👁️ 1
Volkswagen board approves plan to cut another 50,000 jobs
The group - which includes Audi, Porsche, Skoda as well as the VW brand - plans to cut a total of 100,000 by 2030.
Óttast að yfir átta­tíu hafi farist - Vísir
📅 04.09.2026 👁️ 1
Óttast að yfir átta­tíu hafi farist - Vísir
Spænska björgunarsveitin á sjó, Salvamento Marítimo, kom auga á bátinn um 65 sjómílur suðvestur af strandbænum Arguineguín á Kanarí, einni af Kanaríey...
Lindsay Clancy trial tensions flare as judge declines to remove holdout juror
📅 03.09.2026 👁️ 2
Lindsay Clancy trial tensions flare as judge declines to remove holdout juror
The defence lawyer is upset after the judge decides not to remove a holdout in the triple murder case.
Hvíta húsið kynnir tölvuleiki um brottvísanir og landamæramúr
📅 03.09.2026 👁️ 2
Hvíta húsið kynnir tölvuleiki um brottvísanir og landamæramúr
Hvíta húsið kynnti í dag stafrænan spilasal á vefsíðu sinni með fimm einföldum tölvuleikjum sem tengjast stefnumálum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta....
Jobseekers warned over online interview and recruitment scams
📅 03.09.2026 👁️ 1
Jobseekers warned over online interview and recruitment scams
Job seekers, especially Gen Z, are being targeted with fake, booby-trapped recruitment apps.
Are robots the future of entertainment? This South Korean theme park thinks so
📅 03.09.2026 👁️ 2
Are robots the future of entertainment? This South Korean theme park thinks so
Galaxy Robot Park is a 16,500-square-meter venue in South Korea, with attractions including humanoid robots dancing to K-pop hits.
Engar viðræður við Írana fyrr en þeir hætta árásum á kaupskip
📅 03.09.2026 👁️ 1
Engar viðræður við Írana fyrr en þeir hætta árásum á kaupskip
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin ætli ekki að ræða við írönsk stjórnvöld um endalok stríðsins í Íran fyrr en Íranar hætti að r...
Segir Repúblikönum að tala meira um af­rek hans - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 2
Segir Repúblikönum að tala meira um af­rek hans - Vísir
Forsetinn sagðist í gær sannfærður um að árangur hans í Hvíta húsinu þessu sinni skipti sköpum og fleiri þyrftu að tala um hann. „Það eina sem þú þarf...
Jackdaw gas field set to be approved as soon as mid-September, sources say
📅 03.09.2026 👁️ 2
Jackdaw gas field set to be approved as soon as mid-September, sources say
The government is set to give the go-ahead for the gas field off the coast of Aberdeen, the BBC understands.
AI tools that take notes for GPs could miss vital information, study suggests
📅 03.09.2026 👁️ 2
AI tools that take notes for GPs could miss vital information, study suggests
Researchers said the tools - which record consultations - could miss vital things like a patient's facial expressions or emotional state.
Pig kidney works in human body for 271 days - is this the future of organ transplants?
📅 03.09.2026 👁️ 2
Pig kidney works in human body for 271 days - is this the future of organ transplants?
A man has lived for a record nine months with a transplanted pig kidney while waiting for a human transplant.