Árásir Ísraelshers í Líbanon mældust á jarðskjálftamælum en samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni mældist skjálfti af stærðinni 4,1 í Líbanon í kvöld. Þó var ekki um neinn jarðskjálfta að ræða heldur árásir Ísraelshers á neðanjarðarbyrgi Hezbollah-samtakanna.
Ísraelski herinn greindi frá því að tekist hafi að eyðileggja neðanjarðarbyrgið og birti ísraelska varnarmálaráðuneytið myndband af sprenginunni þar sem eldtungur sjást stíga upp til himins. Blaðamenn AFP-fréttastofunnar segja mikinn dynk hafa fylgt sprengingunni.