Rússar heyja ekki aðeins stríð á vígvöllum Úkraínu heldur einnig í rússneskum skólastofum, að því er segir í nýrri skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. Amnesty segja rússnesk stjórnvöld nýta menntakerfið til innrætingar.
Mikinn áróður sé að finna í skólum í Rússlandi og á hernumdum svæðum Úkraínu þar sem stríðsreksturinn er réttlættur.
Úkraínskar kennslubækur hafi verið bannaðar ásamt móðurmálskennslu og rússnesk námskrá tekin upp. Þótt skýrslan nái aðeins til skólabarna á aldrinum sex til 17 ára segir Amnesty sömu vinnubrögð viðhöfð gagnvart yngri og eldri nemendum.
Börnum kennt að virða og treysta ríkisvaldinu
Innan rússneska menntakerfisins sé börnum kennt að virða og treysta ríkisvaldinu og forðast að spyrja gagnrýninna spurninga.
Amnesty segir jafnframt að í nýjum kennslubókum í sögu sé fullveldi Úkraínumanna og sjálfsmynd afneitað og Rússlandi lýst sem virki umkringdu óvinum. Frá árinu 2022 hafi skólar þurft að innleiða kennslustundir og námsefni þar sem ýtt undir ættjarðarást rússneskra nemenda.
Rússneskir kennarar sem andæfa segir Amnesty að hafi verið reknir, sektaðir eða handteknir og úkraínskir kennarar beittir hörku til að nota rússnesku námskrána.
Yfirvöld hóti að taka börn af foreldrum sem gagnrýni stríðið og skólayfirvöld látin tilkynna þá til lögreglu. Þetta athæfi segir Amnesty að brjóti í bága við alþjóðalög, þar á meðal stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna.