Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir norðan fyrir líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að hafa þriðjudaginn 27. maí árið 2025 veist að eiginkonu sinni á heimili þeirra og slegið hana utan undir með flötum lófa á vinstri vanga.
Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaður. Hins vegar kemur ekki fram í ákæru að eiginkonan geri kröfu um miskabætur.
Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóms Norðurlands eystra á Akureyri þann 23. júní næstkomandi.
Þinghald í málinu er lokað.