Yfir 1.400 manns er saknað eftir flóð og aurskriður við landamæri Tíbet og Nepal. Í Nepal hafa 359 fundist látin en um 350 hefur verið bjargað í dag.
Aðstandendur bíða milli vonar og ótta eftir fréttum af sínum nánustu. Af þeim nærri 1.400 sem er saknað báðum megin landamæranna eru hátt í 800 erlendir ferðamenn, margir af þeim eru pílagrímar eða fjallgöngufólk. Hluti þeirra er frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Aðstoð er farin að berast frá öðrum löndum en erfitt hefur reynst að koma henni á staðinn öðruvísi en úr lofti. Samkvæmt UNICEF þurfa að minnsta kosti 17.000 börn á mannúðaraðstoð að halda.
Jökulhlaup talið orsökin
Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna segir að jökulhlaup, hrun úr jökli, hafi komið flóðinu af stað. Hún líkir þessu við sjávarflóðbylgju í miðju landi. Hætta getur verið á frekari flóðum þar sem aur stíflar víða ár og þær stíflur geta brostið.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur tekist að bjarga yfir 350 manns í dag sem vekur vonir um að fleiri finnist á lífi.