Rússar skutu hundruðum dróna og 22 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meira en 30 særðust í árásunum, að sögn úkraínskra embættismanna.
26 særðust í Dniepro og nágrenni. Fimm særðust í Ódesa, Kherson og Zapoizhzhia.
Úkraínuher sagðist hafa skotið niður 546 rússneska dróna. Aftur á móti tókst aðeins að skjóta niður fjórar eldflaugar af 22.