Halla Tómasdóttir forseti Íslands segir Harald fimmta Noregskonung hafa verið góðan þjóðhöfðingja sem Norðmönnum þótti afar vænt um. Dagurinn í dag sé sorgardagur fyrir alla.
Haraldur var konungur Noregs í 35 ár en hann lést í morgun.
Halla vottar norsku konungsfjölskyldunni og Norðmönnum sína dýpstu samúð.
„Það er alveg ljóst að norska þjóðin er í sorg í dag og við finnum til með frændum okkar Norðmönnum á svona degi. Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni,“ segir Halla í viðtali við fréttastofu.
Komið hafi á óvart hve stutt var í kímnigáfuna hjá Haraldi.
„Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga.“
Mikill missir fyrir norsku þjóðina
Haraldur hafi átt stóran stað í hjörtum norsku þjóðarinnar. Það muni Hákon, sonur hans, einnig gera í hlutverki sínu sem Noregskonungur.
„Ég heyrði frá vinum sem ég á í Noregi í morgun og það sló þögn á fólk og margir grétu. Strax í gær sáum við að norska þjóðin brást við,“ segir Halla.
„Ætli hann hafi ekki verið ákveðinn svona áttaviti fyrir norsku þjóðina og jafnvel einhvers konar kærleiksrík orka sem þjóðin fann alltaf fyrir og trúði á.“
Haraldur skilji eftir sig mikla mennsku.
„Það var alveg ljóst, þegar ég var þarna í opinberri heimsókn og einnig þegar ég hitti hann í Svíþjóð núna fyrr á árinu, í afmæli Svíakonungs, að það kunna allir vel að meta þennan vitra, mennska mann. Og það var ekki til í honum, held ég, neitt annað en að sinna og þjóna sinni þjóð og sínu hlutverki í heiminum af bara svo mikilli einlægni. Ég lít fyrst og fremst á hann sem afskaplega mennskan mann – sem ég held að sé fallegt í fari einhvers sem fæðist inn í svona stórt hlutverk,“ segir Halla.