Vísundurinn Donald Trump hefur slegið í gegn í heimalandi sínu Bangladess og á samfélagsmiðlum, einkum vegna ljósa höfuðtoppsins. Hún varð til þess að hann fékk þetta nafn en greiðslan líkist hinu einkennandi hári forseta Bandaríkjanna.
Fjöldi fólks hefur mætt til að berja vísundinn augum og er til dæmis vinsælt að hella vatni yfir toppinn og greiða hann. Eigandinn, Zia Uddin Mridha, segir þetta hafa valdið álagi og vísundurinn hafi grennst. Hann er nú um 700 kíló. Mridha hefur þurft að takmarka aðgengið að honum.
Donald Trump er albínóavísundur sem var erfðabreyttur þannig að melanínið, sem gefur svartan lit á vísunda, var fjarlægt. Vísundinum verður fórnað ásamt 12 milljónum annarra gripa á fórnarhátíð múslíma, Eid al-Adha, síðar í þessum mánuði.