Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á dögunum fram þingsályktunartillögu ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um að fela innviðaráðherra að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp til breytinga á umferðarlögum, lögum um ökutækjatryggingar og lögum um leigubifreiðaakstur, svo og öðrum lögum eftir því sem við á, sem skýrir réttarstöðu sjálfkeyrandi bifreiða hér á landi.
Frumvarpið á meðal annars að mæla fyrir um sérreglur um notkun slíkra bifreiða og sakarskiptingu tjóna milli framleiðanda og notanda. Rætt var um ályktunina, reglur og þróun sjálfkeyrandi bíla í Þetta helst í dag.
Rósa kynntist tækninni fyrst í fyrra í Bandaríkjunum þar sem elsti sonur hennar býr. Hún segir að þegar hún sá hversu algengir slíkir bílar voru orðnir hafi hún farið að fylgjast nánar með þróuninni. Tæknin sé á mikilli hraðferð, prófanir fari fram um allan heim og sífellt fleiri Evrópuríki leyfi notkun hennar. „Við hljótum að vilja taka þátt í tækninni hér á Íslandi eins og aðrar þjóðir,“ segir hún.
Ýmis lagaleg álitaefni hafa komið upp vegna þessarar þróunar hér á landi. Einungis er stuttlega komið inn á sjálfkeyrandi ökutæki í 76. grein umferðarlaga. Þar segir fyrst og fremst að prófanir á sjálfkeyrandi ökutækjum megi aðeins fara fram með leyfi Samgöngustofu, farið er nánar yfir mögulegar prófanir og auk þess kemur fram að ráðherra sé með reglugerð heimilt að setja reglur um sjálfkeyrandi ökutæki og prófanir á þeim.
Aðspurð hvaða álitaefni þurfi að skýra frekar segir Rósa: „Þetta eru umferðarlögin og lög um tjónaábyrgð og leigubílaakstur, svona aðallega. Það er bara úrlausnarefnið sem þingið og Samgöngustofa og til þess gerðir aðilar þurfa að komast að, hvað við þurfum að gera til þess að það sé hægt að leyfa þetta. Við höfum fyrirmyndir núna alls staðar að. Til dæmis er þetta orðið leyft í Danmörku, í Eistlandi og víðar hérna í kringum okkur þar sem við þekkjum til. Við getum líka lært af reynslu annarra í þeim efnum. Það er fyrst og fremst að átta sig á því að þetta er að gerast og að við séum tilbúin í það og leyfin séu þá til staðar.“
Hröð þróun síðustu misseri
Björn Kristjánsson, ráðgjafi hjá FÍB og bílasérfræðingur, segir mikið hafa gerst hjá framleiðendum síðasta árið. „Framleiðendur eru allir að keppast um að koma sinni tækni á framfæri og þeir vita að þetta er það sem framtíðin er að fara að gera fyrir okkur, það er sjálfakandi bíll,“ segir hann. „Ég var að renna yfir gögnin núna. Bara á þessu ári er fjölmargt búið að gerast. Evrópa virðist núna vera að hrökkva í gang, vélarnar að keyra af stað og mikið samstarf á milli Evrópulanda komið í gang.“
Hvað öryggi varðar bendir hann á tölur sem hafa gefið í skyn að sjálfkeyrandi bíll sé sjöfalt öruggari en bíll sem ökumaður ekur. „Hann auðvitað virðir umferðarlög og hann er ekki að taka einhverjar skyndiákvarðanir eða keyra eftir hvernig skapi þú ert í en það er auðvitað ýmislegt annað sem getur komið upp á í umhverfinu okkar sem tölvurnar geta ekki brugðist við. Ég held að það verði þannig að sjálfakandi bíll verði öruggari heldur en maður sem er undir stýri,“ segir Björn.
Í þessu samhengi er því velt upp hvernig sjálfkeyrandi bílar henti íslenskum aðstæðum og veðurfari. „Ég held að ef við færum svona almennilega af stað í þetta þá held ég að Ísland sé bara spennandi staður fyrir framleiðendur til að prófa bílana sína. Við erum með mjög krefjandi umhverfi en á Íslandi er bara svo margt sem við þurfum að skoða áður en við hefjum prófanir. Til dæmis varðandi merkingar á vegum, hvernig umhverfið er, erum við með einhverjar séríslenskar umferðarreglur sem þarf að fylla inn í upplýsingar fyrir bílinn og þess háttar,“ segir Björn.
„Svo þarf að skoða lagaumhverfi, ábyrgð ökumanns, hvernig er bíllinn tryggður. Það eru fjölmargir punktar sem þarf að skoða og það er alveg góður tími til þess að byrja á þessu, bara helst fyrr,“ segir hann.
Vilja ekki að tæknin verði á undan regluverkinu
Þórhildur Elín Elínardóttir hjá Samgöngustofu, sem fer með stjórnsýslu og eftirlit varðandi umferð hér á landi, hefur kynnt sér þessi mál og segir ljóst að mörgum spurningum sé ósvarað um þróun á sjálfkeyrandi bílum. Hún segir að núgildandi lög geri fyrst og fremst ráð fyrir prófunum en ekki almennri notkun. Skýra þurfi reglur um ábyrgð, tæknikröfur og tryggingar. Þá þurfi að liggja fyrir hver teljist ökumaður þegar enginn keyrir í raun. „Við viljum helst ekki að tæknin verði á undan regluverkinu,“ segir hún.
Mikilvægt sé að tæknin ráði við íslenskar aðstæður, „áður en allt er gefið laust.“ „Það er ekki endilega markmiðið að vera fyrst. Við viljum hins vegar vera mjög góð þegar að því kemur og vera örugg því umferðaröryggi er það sem við horfum á fyrst og síðast,“ segir Þórhildur.
„Það getur mjög vel verið að þegar sjálfvirk aksturskerfi eru komin til fullrar notkunar þá verðum við á betri stað heldur en við erum núna. Það eru vísbendingar um það vissulega. Það getur líka verið að þessi yfirgangstími verði talsverð áskorun. Þegar tæknin og mannfólkið er að deila sama umferðarkerfinu, og svo liggur heldur ekki fyrir heildstætt mat á íslenskum vegum út frá þessum punkti eftir því sem mér er kunnugt um. Það þarf auðvitað að skoða eins og ég nefni, íslenskar aðstæður, hvernig tæknin virkar við íslenskar aðstæður.“
„Þetta er framtíðin“
Þórhildur telur afar líklegt að sjálfkeyrandi bílar séu framtíðin. „Við tökum framtíðinni fagnandi og viljum undirbúa okkur vel fyrir hana. Við þurfum að skoða innviðina, við þurfum að skoða regluverkið, við þurfum að skoða ábyrgðina, við þurfum að skoða tryggingar. Það er að ýmsu að hugsa,“ segir Þórhildur.
Björn tekur undir þessa framtíðarspá. „Þetta er framtíðin og þetta er mögulega að gerast mun hraðar heldur en við héldum,“ segir hann. „Ég hélt að við værum öll á góðu tempó-i og allt í fínu en það virðist bara akkúrat á þessu ári þá er allt á fljúgandi ferð.“ Evrópa sé að taka við sér og samstarf milli Evrópuríkja komið af stað. Hann nefnir að 22 ríki taki þátt í slíku samstarfi, þar á meðal Noregur.
Í þessu samhengi má geta þess að Elon Musk, forstjóri rafbílaframleiðandans Teslu, spáði því fyrr á þessu ári að eftir fimm til tíu ár yrðu níutíu prósent bifreiða sjálfkeyrandi með aðstoð gervigreindar. Hvað er langt í að sjálfkeyrandi bílar verði í meirihluta á götum hér á landi?
„Ég get engan veginn svarað því. Það auðvitað skiptir líka máli að það þarf að endurnýja allan flotann,“ segir Björn. „Mögulega eftir tíu ára þá - ef að allt gengur hratt fyrir sig - gætum við farið að sjá fyrstu bílana sem eru ökumannslausir á götunni.“
Nánar er rætt við Björn, Rósu og Þórhildi í Þetta helst í dag.