Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta kemur fram í umfjöllun sem The Guardian birti í dag.
Umfjöllun The Guardian byggir á óbirtri skýrslu brasilískra yfirvalda þar sem fram kemur að glæpasamtökin PCC, eða Primeiro Comando da Capital, hafi haslað sér völl í sextán löndum Evrópu, þar á meðal hér á Íslandi.
Í gögnum lögreglu, leyniþjónustu og dómstóla víða um Evrópu kemur fram að umsvif suðuramerískra glæpasamtaka hafi aukist verulega á síðustu árum samhliða mun meira kókaínsmygli til álfunnar.
Rannsókn The Guardian byggir á fjögurra mánaða gagnasöfnun þar sem blaðamenn nýttu gagnagrunna, upplýsingar frá lögreglu- og leyniþjónustum, auk viðtala við dómara, saksóknara og sérfræðinga í átta löndum. Rannsóknin er ekki skoðanakönnun eða mat sérfræðinga eitt og sér, heldur samantekt á skjalfestum lögreglumálum, dómsskjölum, alþjóðlegum rannsóknum og opinberum gögnum sem sýnir hvar og hvernig suðuramerísk glæpasamtök hafa náð fótfestu í Evrópu.
Glæpasamtök frá Brasilíu, Kólumbíu, Mexíkó og fleiri ríkjum starfa skipulega á Spáni, í Portúgal, Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Rúmeníu, Króatíu, Slóvakíu, Búlgaríu og hér á Íslandi. Margir þessara glæpahópa fjármagna sig með því að smygla kókaíni til Evrópu.
Veldisvöxtur í smygli á kókaíni til Íslands
Magn þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á í Evrópu jókst um 471%, eða næstum fimmfaldaðist, á árunum 2014 til 2024 samkvæmt gögnum sem vitnað er til í umfjöllun Guardian.
Þróunin á Íslandi vekur sérstaka athygli.
Hér sjáum við magn kókaíns sem lögreglan hefur haldlagt hér á landi frá 2015. Árið 2015 voru það 12.800 grömm. Minna var haldlagt á Covid-árunum 2020 og 2021 en á síðustu árum hefur magnið stóraukist og í raun tvöfaldast á milli ára síðustu 3 ár. Frá áramótum hefur lögreglan náð ríflega 212 þúsund grömmum af kókaíni.
Skipulögð glæpasamtök nýta sífellt fjölbreyttari smyglleiðir og dreifikerfi um alla Evrópu á sama tíma og alþjóðleg glæpanet í Evrópu verða fyrirferðarmeiri.
„Við erum að horfa á stórkostlega breytt landslag í afbrotum“
Landið er hluti af Schengen-svæðinu og liggur á mikilvægum flug- og siglingaleiðum milli Norður-Ameríku og Evrópu.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir margt hafa breyst hér á landi á síðustu misserum.
„Við erum að horfa á stórkostlega breytt landslag í afbrotum. Ég sem dómsmálaráðherra hef verið afskaplega skýr með það að ég ætla að fara fast í þessa hópa. Það eru 20 slíkir hópar starfandi í landinu og til þess að við náum árangri þar þarf að efla lögregluna. Svo einfalt er það,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Þetta auki þrýsting á landamæraeftirlit og samstarf lögreglu- og tollayfirvalda þvert á lönd. Liður í því að efla lögregluna hér sé að sameina lögregluembættin í þrjú, en þau eru nú níu talsins. Hún telur það brýnt og blæs á gagnrýni þeirra sem hafa mótmælt sameiningunni.
„Þetta er breyting sem hefur átt sér stað á ca. áratug. Við erum að glíma við hópa sem starfa þvert yfir lönd og þvert yfir landamæri og þá gengur ekki upp að við séum með pínulítil embætti og leggjum á þau skyldur sem embættin geta einfaldlega ekki ráðið við. Ég er í þeim fasa núna að vilja efla lögregluna og til þess erum við að leggja af stað í að efla þessa vegferð,“ segir Þorbjörg Sigríður.