Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun.
„Aðgerðinni lauk farsællega, á tilsettum tíma og eins og áætlað var, og heilagur faðir sneri aftur í herbergi sitt,“ segir í yfirlýsingu Páfagarðs, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.
Páfi tilkynnti sjálfur um fyrirhugaða aðgerð þegar hann ávarpaði fólk á Péturstorginu á sunnudaginn var. Hann sagði hnútinn lítinn og að hann hefði fundist mjög snemma. Læknar hefðu þó ráðlagt honum að láta fjarlægja hann.
Pietro Parolin, kardináli og eins konar utanríkisráðherra Páfagarðs, viðurkenndi við blaðamenn í dag að fréttirnar af aðgerðinni hefðu komið sér í opna skjöldu.
„Hef ég áhyggjur? Já, því ég átti sannarlega ekki von á neinu þessu líku,“ sagði hann.
Parolin sagði kardínálana þó hafa tekið eftir því hve rólegur páfi væri og þeir væru vongóðir um bata hans.