Norðanstormur skellur á landinu á morgun og verða gular og appelsínugular viðvaranir víða í gildi. Rætt var við Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing á Veðurstofu Íslands, í kvöldfréttum sem segir þetta fyrsta almennilega vetrarveðrið fyrir komandi vetur.
„Þetta er mjög djúp og kröpp lægð og hún ætlar að hafa margvísleg áhrif hjá okkur,“ segir Birta sem tekur fram að veðurspá hafi farið versnandi í dag. Tvær appelsínugular viðvaranir hafi bæst við.
Fyrst á Suðurland sem tekur gildi klukkan 05:00. Þar verður austanstormur eða jafnvel rok.
„Og við erum aðallega að horfa á Vestmannaeyjar og undir Eyjafjöllum,“ segir Birta sem tekur fram að talsverð rigning verði suðaustantil og á Austfjörðum.
Um miðjan daginn tekur svo við appelsínugul viðvörun vegna vinds á Breiðafirði. Við sjáum að það er ennþá úrkoma suðaustan- og austantil og búið er að bæta í viðvaranir norðvestanlands.
Veður best á höfuðborgarsvæðinu en samt gul viðvörun
Annað kvöld verða komnar appelsínugular viðvaranir vegna hríðarveðurs á Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra.
„Síðan um nóttina ætlar þessi norðanstrengur með hríð að fara til austurs eftir norðanverðu landinu, þannig að það er margt í þessari lægð,“ segir hún.
Birta segir að verst verði veður á þeim svæðum þar sem appelsínugular viðvaranir taka gildi. „Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur, það þarf að gera ráðstafanir eftir því og á norðvestanverðu landinu erum við að sjá flestar appelsínugular viðvaranir,“ segir hún. Þó tekur hún fram að veður í Vestmannaeyjum verði alls ekki gott í fyrramálið.
„Í höfuðborginni er viðvörun í fyrramálið, hún er ekki mikil, þetta er gul viðvörun vegna vinds, það verður eiginlega skásta veðrið í höfuðborginni,“ segir Birta.