Um 4% dauðsfalla í Belgíu í fyrra voru með dánaraðstoð. Hlutfallið hefur tvöfaldast frá árinu 2020, að því er fram kemur í skýrslu stofnunar um mat og stjórnun dánaraðstoðar, sem kom út fyrr í þessum mánuði.
Í skýrslunni kemur fram að árið 2020 hafi 2.445 dauðsföll verið vegna dánaraðstoðar, tæp 2% af dauðsföllum í landinu. Árið 2025 voru þessi dauðsföll orðin 4.487, eða 4% af öllum dauðsföllum. Hlutfallið tvöfaldaðist því á þessum fimm árum. Þá kemur einnig fram að þessum dauðsföllum fjölgaði um 12,4% milli ára.
Flestar beiðnir um dánaraðstoð eru vegna krabbameins, 51,8% þeirra. Þetta hlutfall fer þó lækkandi á kostnað langvinnra sjúkdóma, eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og lungnateppu.
Þá kemur fram að í 24,2% dauðsfalla voru viðkomandi ekki dauðvona. Þetta hlutfall fer hækkandi.
Telja of auðvelt að fá aðstoð
Samtök sem berjast gegn dánaraðstoð hafa vakið athygli á því að beiðnir um dánaraðstoð eru í auknum mæli samþykktar strax án þess að frekari upplýsinga sé krafist. Áhyggjur eru af því að fólk geti fengið slíka aðstoð of auðveldlega.
Þá segir Alisdair Hungerford-Morgan, forstjóri samtakanna Right To Life UK, það áhyggjuefni að fólki með ákveðin heilsufarsvandamál sem fái dánaraðstoð fari fjölgandi. Til dæmis hafi fólki með elliglöp í þessum hópi fjölgað um 250% á sjö árum. „Fólk sem er slæmt til heilsunnar andlega eða líkamlega á skilið vernd og bestu mögulegu umönnun, ekki að vera leitt í sjálfsvíg,“ segir hann.
Dánaraðstoð hefur verið lögleg í Belgíu frá 2002. Samkvæmt lögunum þarf að gefa út skýrslu um stöðuna annað hvert ár.