Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis í september samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins en hann er sagður ætla að áfrýja málinu.
Ákæruvaldið byggði málflutning sinn á því að Davis hefði skipulagt árásina og útvegað byssuna. Hann var áður leiðtogi South Side Compton Crips-glæpagengisins.
Ræddi aðkomu sína í bók og fjölmiðlum
Opinberar frásagnir Davis af morðinu voru meðal helstu sönnunargagna málsins. Hann hafði ítrekað viðurkennt að hafa verið í hvítum Cadillac-bíl sem skotið var úr á Shakur.
Davis greindi lögreglu fyrst frá aðkomu sinni í yfirheyrslu árið 2008. Hún tengdist rannsókn á morðinu á rapparanum Christopher Wallace, betur þekktum sem Notorious B.I.G., sem var skotinn til bana nokkrum mánuðum eftir Shakur. Davis hafði þá gert samkomulag við yfirvöld um fríhelgi. Hann fjallaði síðar nánar um aðkomu sína í endurminningabókinni Compton Street Legend, sem kom út árið 2019, og í fjölmiðlaviðtölum.
Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins féll sú vernd úr gildi vegna opinberra yfirlýsinga hans síðan. Dómari heimilaði að yfirheyrslan frá 2008 yrði notuð gegn honum við réttarhöldin.
Hafi ýkt til að selja bækur
Verjendur Davis héldu því fram að frásagnir hans væru uppspuni. Hann hefði ýkt aðkomu sína og gortað til að selja bækur og afla tekna.
Ákæruvaldið sagði hins vegar að Davis hefði fyrirskipað skotárásina og útvegað byssuna sem systursonur hans, Orlando Anderson, hefði notað til að skjóta á Shakur.Anderson neitaði að hafa komið að morðinu. Hann lést í annarri skotárás árið 1998.
Morðið á Shakur var eitt þekktasta óupplýsta morðmál Bandaríkjanna í þrjá áratugi og varð kveikja fjölmargra samsæriskenninga. Sakfelling Davis í síðasta mánuði var sú fyrsta í málinu.