Fyrr í dag var greint frá því að aðgerðin hefði gengið að óskum en þá hafði ekki verið upplýst hvort hnútur sem fannst í lunga páfa væri illkynja.
Í yfirlýsingu læknanna Luigi Carbone og Stefano Margaritora á heimasíðu Páfagarðs kemur fram að rannsóknir fyrir aðgerð hafi vakið grun um kirtilkrabbamein í lunga. Vefjarannsókn meðan á aðgerðinni stóð staðfesti þá greiningu.
Páfi var á skurðstofu í um þrjár klukkustundir en sjálf aðgerðin tók um níutíu mínútur. Hann vaknaði og sneri aftur á sjúkrastofu sína á tíundu hæð Gemelli-sjúkrahússins í Róm eftir stutta dvöl undir eftirliti.
Páfi, sem er 71 árs, tilkynnti sjálfur um fyrirhugaða aðgerð á sunnudag. Hnúturinn hafði fundist við reglulega læknisskoðun en samkvæmt Páfagarði hafði hann ekki fundið fyrir einkennum.
Dagskrá hans hefur verið rýmd fram til 20. október svo hann geti jafnað sig eftir aðgerðina.