Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varðar frelsissviptingu sem átti sér stað í Reykholti í apríl árið 2024. Brotaþola, innflytjanda af palestínskum ættum, var dögum saman haldið nauðugum á heimili sínu, beittur þar miklu ofbeldi og krafinn um bankaupplýsingar. Var hann svo rændur ævisparnaðinum og sendur nauðugur úr landi.
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“