Lokunin gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða og að mannaðir lokunarpóstar verði á svæðinu.
Óvissustig verður í gildi frá og með í fyrramálið á vegum um land allt. Ökumenn eru varaðir við því að vegir gætu lokað með skömmum fyrirvara í öllum landshlutum nema suðvesturhorninu og á Austurlandi.
Fyrr í kvöld uppfærði Veðurstofan viðvaranir sínar og hafa nú verið gefnar út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð auk Vestfjarða og Stranda og Norðurlands vestra. Spáð er hvassviðri fyrir norðan og vestan og síðar norðanstórhríð.
Gul viðvörun er áfram í gildi á höfuðborgarsvæðinu á morgun.