Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni á föstudaginn, vegna gruns um að fyrirtækið hefði gerst sekt um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld verður fjallað um þau brot sem fyrirtækið er grunað um að hafa framið.
Í þættinum verða sýnd samskipti birgja og heildsala við viðskiptavini, þar sem þeir segjast ekki mega kaupa vörur vegna þess að þeir séu með samning við Ölgerðina. Þá verður slíkur einkaréttarsamningur sýndur, þar sem viðskiptavinurinn skuldbindur sig til þess að kaupa eingöngu vörur af Ölgerðinni. Árið 2011 var Vífilfell sektað fyrir að gera slíka samninga, en Hæstiréttur felldi síðar þann úrskurð úr gildi.
„Þeir aðilar sem taka ákvarðanir um og vilja kaupa vöruna okkar, þeir treysta sér ekki til að taka okkar vöru og setja á krana á meðan þeir eru með þessa samninga við Ölgerðina,“ segir Laufey Sif Lárusdóttir hjá brugghúsinu Ölverk í Hveragerði. Laufey er jafnframt formaður Samtaka handverksbrugghúsa.
Á meðal þeirra sem segjast ekki geta átt í viðskiptum við aðra vegna samnings við Ölgerðina eru hótel, barir og veitingastaðir, en einnig útihátíðir, nemendafélög í háskólunum og Knattspyrnusamband Íslands. Keppninautar Ölgerðarinnar hafa ítrekað kvartað yfir þessum samningum við Samkeppniseftirlitið.
„Það skiptir ekki máli hvað mér finnst. Ef þú ert dómínerandi á markaði, markaðsráðandi, þá er þetta bara ólöglegt og Samkeppniseftirlitið á að taka á því,“ segir Friðjón Hólmbertsson, framkvæmdastjóri heildsölunnar Steindal.
Forsvarsmenn Ölgerðarinnar vildu ekki veita Kveik viðtal þegar eftir því var leitað, en í skriflegum svörum játuðu þeir hvorki né neituðu þegar þeir voru spurðir hvort fyrirtækið gerði einkaréttarsamninga við viðskiptavini sína. „Samkvæmt verklagi eru samningar sem Ölgerðin býður viðskiptavinum sínum ekki einkaréttarsamningar,“ segir í svörunum.
Í Kveik í kvöld verður einnig sýnt hvernig veitingastaður selur drykkjarvöru frá Ölgerðinni, þegar viðskiptavinur biður um vöru frá öðrum framleiðanda.
Kveikur er á dagskrá klukkan 20:15 í kvöld.